Litun

Litun og plokkun/vax hefur lengi verið ein vinsælasta meðferð á snyrtistofum hér á landi og mjög góð meðferð til þess að skerpa á augnasvip.

Henna litun

Henna eru 100% náttúrulegir vegan litir og virka sem nærandi meðferð fyrir hárin í augabrúnunum og geta stuðlað að auknum hárvexti á stöðum þar sem vantar hár.

Henna litun endist lengur en hefðbundin litun og gefur fallegan skugga í húðina hvort sem er óskað eftir ljósum eða dökkum lit.